Forsíða
61.096 greinar á íslensku.
Diego Maradona
Diego Maradona var argentínskur knattspyrnumaður og er talinn einn besti leikmaður sögunnar. Hann vann fjölda titla með félagsliðum sínum í Argentínu, Spáni og Ítalíu, auk þess að leiða þjóð sína til sigurs á HM 1986. Árið 2000 voru Maradona og Brasilíumaðurinn Pelé útnefndir bestu knattspyrnumenn 20. aldar af Alþjóðaknattspyrnusambandinu. Á seinni hluta ferils síns átti Maradona við að etja ýmis vandamál sem tengdust ofneyslu eiturlyfja. Hann rataði ítrekað í fréttir vegna ummæla sinna eða skrautlegra uppátækja í seinni tíð. Maradona var síðast þjálfari argentínska félagsins Gimnasia de la Plata.
Vissir þú...

- … að Ferdinand 1. Búlgaríukeisari var fyrsti þjóðhöfðinginn sem flaug um borð í flugvél?
- … að flestir fræðimenn telja að tala dýrsins, 666, í Opinberunarbók Jóhannesar, vísi til Nerós Rómarkeisara?
- … að Joseph Merrick, öðru nafni fílamaðurinn (sjá mynd), fékkst við að smíða vönduð smálíkön af byggingum úr pappa?
- … að talið er að yfir 800.000 Indverjar hafi látið lífið í hefndaraðgerðum Breta gegn uppreisninni á Indlandi árið 1857?
- … að kirkjan á Íslandi heyrði undir Erkibiskupsdæmið í Bremen frá stofnun fram til 1104 þegar erkibiskupsdæmið í Lundi var stofnað fyrir kirkjur Norðurlanda?
Fréttir

- 22. júní: Keir Starmer (sjá mynd) segir af sér sem forsætisráðherra Bretlands.
- 14. júní: Bandaríkin og Íran gera samkomulag til að binda enda á Íransstríðið.
- 12. júní: Elon Musk verður fyrsti billjónamæringur sögunnar (í bandaríkjadölum) eftir að opnað er fyrir viðskipti með fyrirtæki hans, SpaceX, á NASDAQ-hlutabréfamarkaðnum.
- 2. júní: Hildur Björnsdóttir tekur við sem borgarstjóri Reykjavíkur.
Yfirstandandi: Borgarastyrjöldin í Jemen • Borgarastyrjöldin í Súdan • Innrás Rússa í Úkraínu / Stríð Rússlands og Úkraínu • Íransstríðið • Stríð Ísraels og Hamas
Nýleg andlát: Margrét Helga Jóhannsdóttir (17. júní) • Tryggvi Gíslason (8. júní) • Aðalsteinn Bergdal (28. maí)
22. júní
- 2004 - Belgíski barnaníðingurinn Marc Dutroux var dæmdur í lífstíðarfangelsi.
- 2007 - Spangarheiðarskurðurinn var opnaður fyrir bátaumferð að nýju.
- 2010 - Léttlestakerfi Björgvinjar var tekið í notkun í Noregi.
- 2010 - Mari Kiviniemi tók við embætti forsætisráðherra Finnlands eftir afsögn Matti Vanhanen.
- 2012 - Þing Paragvæ samþykkti vantraust á forsetann, Fernando Lugo.
- 2016 - Karlalandslið Íslands í knattspyrnu komst í 16 liða úrslit í Evrópukeppninni í knattspyrnu með 2:1 sigri á Austurríki.
- 2022 – Að minnsta kosti þúsund manns létu lífið í jarðskjálfta í Afganistan.
Systurverkefni
|
|