Prince

Prince Rogers Nelson (7. júní 1958 - 21. apríl 2016), þekktur sem Prince, var bandarískur tónlistarmaður, leikari og framleiðandi. Meðal tónlist sem hann spilaði var rokk, popp, fönk og ryþmablús.
Prince ólst upp í Minneapolis, Minnesota. Hann var sonur Prince Rogers Nelson sem var djasspíanisti og Mattie Della sem var djasssöngkona. Prince kenndi sér á hljóðfæri og spilaði síðar á fjöldamörg þeirra. Eftir að hafa skrifað undir samning hjá Warner Bros, náði hann toppinum á ryþmablús-listanum með laginu "I Wanna Be Your Lover", þegar hann var tvítugur. Árið 1981 opnaði hann fyrir Rolling Stones á túr þeirra en hlaut dræmar undirtektir hjá aðdáendum þeirra. Kvikmyndin Purple Rain (1984) og tónlistin við hana gerði Prince að stórstjörnu og hlaut hann Óskarsverðlaun fyrir bestu kvikmyndatónlistina. Tónlistin gat verið umdeild með kynferðislegum tón en Tipper Gore, eiginkona Al Gore, þingmanns, komst að því að ellefu ára dóttir hennar hlustaði á lagið Darling Nikki af Purple Rain en það fjallaði um sjálfsfróun. Gore stofnaði í kjölfarið Parents Music Resource Center sem barðist fyrir ritskoðun á afþreyingarefni.
Árið 1993 breytti Prince listamannanafni sínu í Love Symbol (tákn sem sameinaði karl og kvenkyn) eða The Artist Formerly Known As Prince/The Artist. En þá átti hann í málaferlum við Warner Bros. Um aldamót sneri hann til fyrra listanafns.
Prince lést árið 2016 eftir að hafa óvart tekið of stóran skammt af verkjalyfinu fentanýl.[1]
Breiðskífur
[breyta | breyta frumkóða]- For You (1978)
- Prince (1979)
- Dirty Mind (1980)
- Controversy (1981)
- 1999 (1982)
- Purple Rain (1984)
- Around the World in a Day (1985)
- Parade (1986)
- Sign o' the Times (1987)
- Lovesexy (1988)
- Batman (1989)
- Graffiti Bridge (1990)
- Diamonds and Pearls (1991)
- Love Symbol (1992)
- Come (1994)
- The Black Album (1994)
- The Gold Experience (1995)
- Chaos and Disorder (1996)
- Emancipation (1996)
- Crystal Ball (1998)
- The Truth (1998)
- The Vault: Old Friends 4 Sale (1999)
- Rave Un2 the Joy Fantastic (1999)
- The Rainbow Children (2001)
- One Nite Alone... (2002)
- Xpectation (2003)
- N·E·W·S (2003)
- Musicology (2004)
- The Chocolate Invasion (2004)
- The Slaughterhouse (2004)
- 3121 (2006)
- Planet Earth (2007)
- Lotusflow3r (2009)
- MPLSound (2009)
- 20Ten (2010)
- Plectrumelectrum (2014)
- Art Official Age (2014)
- HITnRUN Phase One (2015)
- HITnRUN Phase Two (2015)
- Welcome 2 America (2021)
- Timeless (2026)
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Prince - Biography Allmusic