Forsíða
Velkomin á Wikipediu,
frjálsa alfræðiritið sem allir geta unnið að.
61.280 greinar á íslensku.
Síkismi
Síkismi er eingyðistrú byggð á kenningum tíu gúrúa sem lifðu á 16. og 17. öld á norðurhluta Indlands. Síkismi er ein af stærri trúarbrögðum heims með yfir 23 milljónir trúaðra. Orðið síkismi er dregið af orðinu sikh, úr sanskrít śikkya (शिष्य) sem þýðir „nemandi“ eða „fylgjandi“ eða frá samsvarandi palíska orðinu sikkhā (सिक्खा).
Þeir sem fylgja síkisma eru nefndir síkar. Trúaðir síkar drekka ekki áfengi, nota ekki önnur fíkniefni og borða ekki kjöt. Síkar trúa á karma og endurfæðingu eins og hindúar, en hafa hins vegar aðeins einn guð.
Vissir þú...

- … að óklárað minnismerki af frumbyggjaleiðtoganum Æra Fáki í Dimmufjöllum í Suður-Dakóta yrði stærsta myndastytta í heimi ef það væri klárað?
- … að aldrei er sagt í Biblíunni að vitringarnir þrír hafi verið þrír talsins, heldur eru þeir aðeins taldir þrír samkvæmt hefð?
- … að tónlist úr James Bond-myndinni Njósnarinn sem elskaði mig var notuð í hljóðmynd íslensku útvarpsþáttanna um Harrý og Heimi.?
- … að hætt var við sýningu kvikmyndarinnar Síðasta freisting Krists í Ríkisútvarpinu árið 1997 eftir kvartanir yfir guðlasti frá Ólafi Skúlasyni biskupi?
- … að Atahualpa (sjá mynd), síðasti keisari Inkaveldisins, greiddi landvinningamanninum Francisco Pizarro heilt herbergi af gulli í skiptum fyrir lausn sína úr haldi árið 1533, en var tekinn af lífi eftir að lausnargjaldið var greitt?
Fréttir

- 8. mars: Mojtaba Khamenei er valinn æðsti leiðtogi Írans.
- 1. mars: Davíð Oddsson (sjá mynd), fyrrum forsætisráðherra Íslands, deyr.
- 28. febrúar: Bandaríkin og Ísrael gera árásir á Íran og drepa Ali Khamenei erkiklerk ásamt fleiri leiðtogum.
- 23. febrúar: Rob Jetten tekur við embætti forsætisráðherra Hollands.
- 15. febrúar: Lilja Alfreðsdóttir er kjörin formaður Framsóknarflokksins.
Yfirstandandi: Borgarastyrjöldin í Jemen • Borgarastyrjöldin í Súdan • Innrás Rússa í Úkraínu / Stríð Rússlands og Úkraínu • Íransstríðið • Stríð Ísraels og Hamas
Nýleg andlát: Davíð Oddsson (1. mars) • Mahmoud Ahmadinejad (28. febrúar) • Ali Khamenei (28. febrúar) • Haraldur Sigurðsson (18. febrúar) • Jesse Jackson (17. febrúar)
10. mars
- 2006 - Geimfarið Mars Reconnaissance Orbiter fór á braut um Mars.
- 2009 - Eva Joly var ráðin sem sérstakur ráðgjafi ríkistjórnar Íslands.
- 2017
- Sameinuðu þjóðirnar vöruðu við mögulegu mesta neyðarástandi heims frá Síðari heimsstyrjöld vegna hættu á hungursneyð í Jemen, Sómalíu, Suður-Súdan og Nígeríu.
- Hæstiréttur Suður-Kóreu kvað upp úr um lögmæti vantrausts sem þingið hafði samþykkt á hendur Park Geun-hye, forseta landsins, sem þar með var vikið úr embætti.
- 2019 – Boeing 737 MAX 8-flugvél á leið frá Addis Ababa í Eþíópíu til Naíróbí í Keníu brotlenti sex mínútum eftir flugtak. Allir um borð, alls 157 manns, létu lífið.
- 2022 - Katalin Novák var kjörin forseti Ungverjalands.
Systurverkefni
|
|