Fara í innihald

Taj Mahal

27°10′30″N 78°2′31″A / 27.17500°N 78.04194°A / 27.17500; 78.04194

Image
Taj Mahal er leghöll sem Shah Jahan keisari lét byggja fyrir persneska konu sína

Taj Mahal er leghöll í Agra á Indlandi sem Mógúlkeisarinn Shah Jahan lét byggja í minningu um persneska eiginkonu sína, Mumtaz Mahal. Höllin var 23 ár í byggingu (frá 1630 – 1653) og er meistaraverk mógúlskrar byggingarlistar.

Efniviðurinn í höllina var fluttur frá gervöllu Indlandi og öðrum hlutum Asíu. Yfir 1,000 fílar voru notaðar til að flytja byggingarefni meðan á framkvæmdum stóð. Hvíti marmarinn var fluttur frá Rajasthanhéraði, jaspisinn frá Punjabsvæðinu, jaðinn og kristallarnir frá Kína, túrkísinn frá Tíbet, asúrsteinarnir frá Afganistan, safírinn frá Srí Lanka og kalsedónsteinarnir frá Arabíu. Allt í allt voru 28 gerðir af gimsteinum greyptir í marmarann.

Höllin kostaði allt í allt 40 milljón rúpíur en á þeim tíma kostaði gramm af gulli um 1,3 rúpíur.

  • Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir (6. febrúar 2016). „Getið þið sagt mér eitthvað um Taj Mahal?“. Vísindavefurinn. Sótt 23. apríl 2026.
Image  Þessi byggingarlistgrein sem tengist sögu er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.