Íslenski dansflokkurinn – Íd – sýnir samtímadans og hefur það meginmarkmið, að vekja og viðhalda áhuga almennings á listforminu.
![[Íd] Íslenski dansflokkurinn](https://id.is/wp-content/uploads/2022/09/UmId-background-265x177.jpg)
Um okkur:
Íslenski dansflokkurinn er aðaldriffjöðurin í dansheiminum hérlendis. Hann þróar og setur á svið ný íslensk dansverk sem sýnd eru heima og erlendis, en tekur jafnframt þátt í alþjóðlegum samstarfsverkefnum. Meginmarkmið Íslenska dansflokksins er að vekja og viðhalda áhuga almennings á listforminu. Hann lætur sér annt um áhorfendur sína og vill mæta þeim á fjölbreyttan hátt.
Listdansstjóri Íslenska dansflokksins er Lovísa Ósk Gunnarsdóttir. Lovísa hefur starfað sem dansari hjá ÍD, sem sjálfstæður danshöfundur, kennari og sviðslistamaður á Íslandi og hefur skapað verk fyrir Íslenska dansflokkinn, Reykjavík Dance Festival og Borgarleikhúsið svo nokkur dæmi séu nefnd. Lovísa hefur hlotið verðlaun og tilnefningar fyrir störf sín bæði sem danshöfundur og dansari.
Íslenski dansflokkurinn vinnur jafnt með tónlistar- og myndlistarfólki, sinfóníuhljómsveitum og öðrum dansflokkum. Hann tekur þátt í tónlistarmyndböndum, danskvikmyndum og hátíðum af ýmsu tagi, skipuleggur vinnusmiðjur, listamannaspjöll og sýnir verk sín allt eins í almannarýmum og á listasöfnum. Þessi aðferðafræði og sýn hefur skapað Íslenska dansflokknum sérstakan sess í hópi framsæknustu dansflokka Evrópu.
Dæmi um samstarfsaðila: SigurRós, Ben Frost, Anna Þorvaldsdóttir, Björk, Ólafur Arnalds, Jonas Akerlund, Matthew Barney, Gabríela Friðriksdóttir, Ragnar Kjartansson.
Íslenski dansflokkurinn hefur á að skipa fjölbreyttum hópi afburðadansara sem taka virkan þátt í listsköpuninni hverju sinni og bera hróður flokksins víða um lönd, hvort sem borið er niður í Southbank Centre í Lundúnum, Onassis listamiðstöðinni í Aþenu eða Civic Centre Theatre í Hong Kong. Gott orðspor er ekki síst þeim að þakka ásamt danshöfundum, listrænu teymi, tæknifólki og starfsfólki á skrifstofu sem öll vinna saman að því að skapa og koma á framfæri dansverkum sem eftir verður tekið.
Íslenski dansflokkurinn vinnur náið með dansdeild LHÍ og heldur auk þess úti alþjóðlegu skiptinemaprógrammi þar sem áhersla er lögð á að auðvelda ungum dönsurum að stíga sín fyrstu skref í atvinnumennskunni.
![[Íd] Íslenski dansflokkurinn](https://id.is/wp-content/uploads/2022/09/Pottthett_myrkur_2-2-265x148.jpg)
Listdansstjórar Íslenska dansflokksins:
Listdansráð er skipað eftirfarandi aðilum:
Varamenn eru:
Ásgeir Helgi Magnússon
Sveinbjörg Þórhallsdóttir
![[Íd] Íslenski dansflokkurinn](https://id.is/wp-content/uploads/2022/09/DSC2729-265x166.jpg)

Skráning á póstlistann
Borgarleikhúsinu
Listabraut 3, 103 Reykjavík
588 0900 | Miðasala 568 8000
Skráning á póstlistann
Skilmálar
Persónuvernd