Hér er samantekt á því hvernig Myllusetur ehf. (hér eftir „VB“) vinnur persónuupplýsingar. Athygli er vakin á því að sérstakar reglur gilda um vinnslu fjölmiða á persónuupplýsingum, en VB er fjölmiðill. Hvað viðskiptasambönd VB varðar og að því leyti sem lög um vinnslu persónuupplýsinga eiga við gildir eftirfarandi:
Við munum gefa þér tiltekin dæmi um vinnslu á persónuupplýsingunum þínum. Vinsamlegast hafðu samband við okkur í tölvupósti með því að skrifa til [email protected] ef þú óskar nánari upplýsinga, ef þú vilt að óska eftir aðgengi, leiðréttingu, takmörkun og eyðingu á persónuupplýsingum þínum. Enn fremur mátt þú fá afrit af persónuupplýsingum þínum eftir því sem lög áskilja.
VB vinnur eða meðhöndlar persónuupplýsingar sem það safnar ýmist sem ábyrgðaraðili eða vinnsluaðili. Persónuupplýsingar þínar verða geymdar eins lengi og nauðsynlegt er í þeim tilgangi sem þau eru ætluð til vinnslu, eða svo framarlega sem gilt samþykki þitt fyrir vinnslu er fyrir hendi. Þú getur hvenær sem er afturkallað samþykki þitt fyrir vinnslu, í heild eða að hluta.
Upplýsingar um ábyrgðaraðila persónuupplýsinga
Þegar VB vinnur persónuupplýsingar þínar samkvæmt þessari persónuverndarstefnu telst Myllusetur ehf. vera „ábyrgðaraðili“ persónuupplýsinga þinna samkvæmt lögum Evrópusambandsins og íslenskum lögum um persónuvernd. Heimilisfang okkar er sem hér segir:
Myllusetur ehf., kt. 671108-1320, Ármúla 10, 108 Reykjavík
VB hefur skipað persónuverndarfulltrúa sem þú getur haft samband við með því að senda tölvupóst á [email protected] eða skriflega á ofangreint heimilisfang.
VB vinnur ekki úr persónuupplýsingum þínum nema þar að lútandi lagastoð sé fyrir hendi. Lagastoðin kann að breytast eftir því hver tilgangur vinnslunnar er. Í næstum öllum tilvikum er lagastoðin eftirfarandi:
Þegar við vinnum persónuupplýsingar sem byggja á samþykki þínu getur þú afturkallað samþykkið hvenær sem er. Vinsamlegast hafðu samband við VB til að afturkalla samþykki þitt með því að senda tölvupóst á [email protected] eða með bréfpósti á neðangreint heimilisfang:
Þegar þú gerist áskrifandi að þjónustu VB varðveitum við persónuupplýsingar um þig og nýtum til samskipta um áskrift, aðra þjónustu VB og til þess að koma áleiðis tilkynningum sem varða viðskiptasamband okkar.
Þegar þú skráir þig á póstlista hjá VB eða veitir með öðrum hætti samþykki fyrir því að fá skilaboð í tölvupósti, smáskilaboðum, síma eða bréfpósti. Þú getur hvenær sem er dregið samþykki þitt til baka með því að ýta á tengil í tölvupóstum VB til þín eða eða með því að senda tölvupóst á [email protected].
VB geymir persónuupplýsingar ekki lengur en nauðsyn krefur miðað við tilgang vinnslunnar nema að fengnu samþykki þínu.
VB vinnur persónuupplýsingar sem þú afhendir okkur eins og nafn, tölvupóstfang, kennitölu, símanúmer og heimilisfang. Í sumum tilvikum sækir VB persónuupplýsingar um þig til þriðja aðila, t.d. með því að fletta þér upp í Þjóðskrá í þeim tilgangi að kanna hvar þú hefur skráð lögheimili, t.d. til þess að samræma við viðskiptamannagrunn. Í öllum tilfellum vinnur VB aðeins persónuupplýsingar í tengslum við starfsemi sína.
Persónuverndarstefna VB á við þegar við söfnum, nýtum eða vinnum með öðrum hætti persónuupplýsingar sem varða samband þitt við VB í viðskiptalegu tilliti.
Persónuverndarstefnan gildir ekki þegar vinnsla persónuupplýsinga varðar fjölmiðlun, utan þess sem áskilið er í 2. mgr. 6. gr. laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 og eftir atvikum öðrum lögum.
VB vinnur ekki viðkvæmar persónuupplýsingar.
Við vinnum persónuupplýsingar um þig þegar þú gerist áskrifandi VB eða þegar þú óskar eftir því að fá sendar upplýsingar um VB. Jafnframt vinnum við persónuupplýsingar um þig sem hluta af markaðsstarfi VB, svo framarlega sem lög heimila.
Enn fremur kann VB að vinna persónuupplýsingar frá þriðja aðila, svo sem Þjóðskrá Íslands, til þess að samræma við viðskiptamannagrunn.
Vinsamlegast lestu „Hvaða tegundir persónuupplýsinga vinnum við?“ til að sjá hvaða tegundir persónuupplýsinga VB vinnur um þig.
VB vinnur um þig eftirfarandi tegundir persónuupplýsinga:
Nafnið þitt, kennitölu, heimilisfang, tölvupóstfang og aðrar tengiliðaupplýsingar.
Megintilgangurinn með vinnslu persónuupplýsinga þinna er:
Að reka starfsemi VB.
VB deilir persónuupplýsingum þínum ekki með neinum nema í lögmætum og málefnalegum tilgangi. Persónuupplýsingum þínum kann að vera deilt með þriðju aðilum í eftirtöldum tilvikum:
VB selur ekki persónuupplýsingar þínar til þriðju aðila.
VB kann að deila upplýsingum þínum með þriðju aðilum í löndum sem eru staðsett innan Evrópska efnahagssvæðisins.
Ef nauðsynlegt er að deila upplýsingum með þriðja aðila sem ekki er innan EES svæðisins, á eitthvert eftirtalinna atriða við:
Samkvæmt löggjöf Evrópusambandsins og íslenskum persónuverndarlögum getur þú óskað eftir afriti af persónuupplýsingum þínum ef þær eru unnar af VB. Þú þarft ekki að borga gjald fyrir þessa beiðni nema að hún eigi sér bersýnilega enga stoð eða sé óhófleg. VB mun gera allt sem í sínu valdi stendur til að bregðast við beiðni þinni innan 30 daga frá móttöku.
Beiðni þín verður að vera skrifleg og innihalda eftirfarandi upplýsingar:
Að auki biðjum við þig um að leggja fram:
Vinsamlegast sendu beiðni þína til:
Þú hefur einnig rétt á að leggja fram kvörtun til Persónuverndarar. Kvörtun má senda skriflega til:
Persónuvernd
Rauðarárstíg 10
105 Reykjavík
Ísland
VB getur gert breytingar á þessari persónuverndarstefnu svo að hún endurspegli sem best hvaða vinnsla persónuupplýsinga fer fram á hverjum tíma. VB getur sett tilkynningu á vefsíðu sína eða miðlað til þín með öðrum hætti þegar persónuverndarstefnunni er breytt. Þú getur skoðað nýjustu útgáfu persónuverndarstefnu okkar á þessari síðu.