1614
Útlit
| Árþúsund: | 2. árþúsundið |
|---|---|
| Aldir: | |
| Áratugir: | |
| Ár: |
Árið 1614 (MDCXIV í rómverskum tölum) var fjórtánda ár 17. aldar sem hófst á miðvikudegi samkvæmt gregoríska tímatalinu en laugardegi samkvæmt júlíska tímatalinu sem er tíu dögum á eftir.
Ísland
[breyta | breyta frumkóða]- Júní - Enskir sjóræningjar undir forystu Williams Clark og James Gentleman rændu tveimur dönskum skipum og fóru ránshendi um Vestmannaeyjar í tvær vikur.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]Ódagsett
[breyta | breyta frumkóða]- Hallgrímur Pétursson sálmaskáld (d. 1674).
- Ólafur Halldórsson, skólameistari í Skálholtsskóla og prestur.
- Helga Aradóttir, hefðarkona (f. 1538)
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]
- 1. febrúar - Japan bannaði kristni og rak kristniboða úr landi.
- 2. febrúar - Abbas mikli, leiðtogi Safavídaríkisins í Persíu lét drepa elsta son sinn vegna gruns um að hann hygðist ráða hann af dögum.
- Febrúar - Danska ríkisráðið, dönsku biskuparnir og konungur hittust á þinginu í Kolding þar sem biskupinn og kalvínistinn Oluf Kock var gerður útlægur.
- 5. apríl - Frumbyggjastúlkan Pocahontas var neydd í hjónaband með Englendingnum John Rolfe í Jamestown.
- 14. júlí - Svíar sigruðu Rússa í orrustunni við Bronnicy.
- 23. ágúst - Groningenháskóli var stofnaður.
- 11. október - Adriaen Block og hópur kaupmanna í Amsterdam óskuðu eftir því við hollenska þingið að fá einkaleyfi á verslun í Nýja Hollandi.
- 4. desember - Umsátrið um Ósaka hófst.
Ódagsett
[breyta | breyta frumkóða]- Síðustu fundir franska stéttaþingsins fram að frönsku byltingunni.
- Svíar gerðu varnarbandalag við Holland og Lýbiku.
- John Napier gaf út ritið Mirifici Logarithmorum Canonis Descriptio þar sem hann setur fram hugmyndina um lógaritma.
- Fyrsta stefnuyfirlýsing Rósakrossreglunnar, Fama Fraternitatis Rosae Crucis, var gefin út í Þýskalandi.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 1. janúar - John Wilkins, enskur dulmálsfræðingur (d. 1672).
- 5. janúar - Leópold Vilhelm erkihertogi af Austurríki (d. 1662).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 18. mars - Brostrup Giedde, danskur aðalsmaður sem var hirðstjóri á Íslandi (f. 1560).
- 7. apríl - El Greco, krítverskur listmálari (f. 1541).
- 11. ágúst - Lavinia Fontana, ítalskur listmálari (f. 1552).
- 21. ágúst - Erzsébet Báthory, ungversk greifynja og fjöldamorðingi (f. 1560).
- 15. október - Peder Claussøn Friis, norskur prestur og fornmenntafræðingur (f. 1545).