1616
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |
Árið 1616 (MDCXVI í rómverskum tölum) var sextánda ár 17. aldar og hlaupár sem hófst á föstudegi samkvæmt gregoríska tímatalinu en mánudegi samkvæmt júlíska tímatalinu sem er tíu dögum á eftir.
Ísland
[breyta | breyta frumkóða]- Janúar - Spánverjavígin: Ari Magnússon fór með hundrað manna lið að leita að og vega Baska. Honum tókst að drepa einn og særa annan í Tálknafirði.
Ódagsettir atburðir
[breyta | breyta frumkóða]- Reykjavík var seld konungi og varð konungsjörð þar til hún var seld Innréttingunum árið 1752.
- Kolbeinsey var fyrst mæld og sögð vera 100 metra breið og 700 metra löng.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]Dáin
[breyta | breyta frumkóða]Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]
- 12. janúar - Borgin Belém var stofnuð í Brasilíu.
- 29. janúar - Hollenski skipstjórinn Willem Schouten sigldi fyrstur fyrir Hornhöfða í Suður-Ameríku.
- 19. febrúar - Fyrsta skráða eldgosið fyrir Mayon-eldfjallið á Filippseyjum.
- 5. mars - Bókin De revolutionibus eftir Nikulás Kóperníkus var sett á bannlista kaþólsku kirkjunnar.
- 11. mars - Galileo Galilei hitti Pál 5. páfa í eigin persónu og ræddi við hann um afstöðu hans til sólkerfisins.
- 3. maí - Loudun-sáttmálinn batt endi á röð uppþota húgenotta gegn Frakkakonungi.
- 8. ágúst - Tokugawa-veldið í Japan lagði bann við verslun og heimsóknum útlendinga annars staðar en í hafnarborgunum Nagasaki og Hirado.
Ódagsettir atburðir
[breyta | breyta frumkóða]- Styrjöld braust út milli Feneyja og Austurríkis vegna ránsferða úskoka frá Króatíu.
- Byggingu Bláu moskunnar í Konstantínópel lauk.
- Svissneski vörðurinn varð hluti af lífverði Loðvíks 13. Frakkakonungs.
- Ngawang Namgyal flúði frá Tíbet og stofnaði fyrsta klaustrið í Bútan.
- William Baffin kannaði Baffin-flóa og náði 77° 45' breiddargráðu norður, met sem stóð í 236 ár.
- Ole Worm safnaði munum sem síðar urðu uppistaðan í safni dýragarðs Kaumannahafnar.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 2. febrúar - Sébastien Bourdon, franskur listmálari. (d. 1671)
- 19. maí (skírður) - Johann Jakob Froberger, þýskt tónskáld (d. 1667).
- 25. maí - Carlo Dolci, ítalskur listmálari (d. 1686).
- 20. október - Thomas Bartholin, danskur læknir og stærðfræðingur (d. 1680).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 23. apríl - William Shakespeare, enskt leikskáld (f. 1564).
- 23. apríl - Miguel de Cervantes, spænskur rithöfundur (f. 1547).
- 1. júní - Tokugawa Ieyasu, japanskur sjógun. (f. 1543)
- 20. júlí - Aodh Mór Ó Néill, jarl af Tyrone (f. um 1540).